Grillað lamba prime með wasabi- og rauðvínsgljáa
Grillað lamba prime með brokkolíni og kartöflum — borið fram með dásamlegum wasabi- og rauðvínsgljáa eftir uppskrift Ísaks Arons, Kokkurs ársins 2026.
Lamba prime
- 800 g lamba prime
- eftir smekk salt, pipar og olía
Wasabi- og rauðvínsgljái
- 200 ml rauðvín
- 2 msk. wasabi-pasta
- 50 g smjör
- 1 msk. hunang
- eftir smekk salt
Meðlæti
- 2 búntar brokkolíni
- 500 g litlar kartöflur, forsoðnar
- 2 stk. laukar
- eftir smekk olía, salt og pipar
Aðferð
- Saltið og piprið lamba primeið vel og penslið með olíu. Hitið grillið í mikinn hita.
- Grillið lamba primeið þar til kjötkjarni nær 55–57°C (medium rare). Látið hvíla í 5 mínútur.
- Wasabi-gljái: Sjóðið rauðvínið niður um helming. Bætið wasabi-pasta, hunangi og smjöri saman við og hrærið þar til gljái myndast.
- Grillið kartöflurnar, brokkolínið og laukinn þar til þeir fá fallegar grillmerkit.
- Berið lambakjötið fram með grilluðu meðlæti og penslið með wasabi- og rauðvínsgljáanum.