Grillað lambaspjót með kerfil gremolada og hvítum aspas
Grillað lambaspjót með BBQ-gljáa og kerfil gremolada — borið fram með grilluðum hvítum aspas og noisette-smjöri.
Lambaspjót
- 500 g lambamjöðm
- 2 tsk. reykt paprika
- 2 tsk. paprika
- 1 tsk. hvítlaukskrydd
- 1 tsk. kúmen
- 2 g salt
- 20 ml ólífuolía
Lambagljái
- 60 g tómatar í niðursuðudós
- 100 g púðursykur
- 60 g eplaedik
- 40 g BBQ-sósa
- 5 g paprikuduft
- 5 g kóríanderfræ
- 1 stk. anísstjarna
- 1 stk. hvítlauksrif
Kerfill gremolada
- 15 g ferskur kerfill
- 10 g fersk steinselja
- 10 g fersk skessujurt
- 5 g skalottlaukur
- 1 stk. hvítlauksgeiri
- 2 g eplaedik
- 1 stk. sítróna (börkurinn rifinn niður
- eftir smekk salt
Grillaður hvítur aspas
- 8 stk. hvítur aspas
- 4 msk. noisette (brúnað smjör)
- eftir smekk ristaðar möndluflögur
- eftir smekk ferskur sítrónusafi
Aðferð
- Blandið saman reyktri paprikum, paprika, hvítlaukskryddi, kúmeni, salti og ólífuolíu. Skerið lambamjöðmina í jafnstóra bita og penslið með marineringunni. Látið liggja í 30 mínútur.
- Lambagljái: Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið niður um helming. Smakkið til með salti og eplaediki.
- Raðið lambabitunum á grillspjót. Hitið grillið í mesta hita og grillið í 10–15 mínútur, penslið með lambagljánum á meðan.
- Kerfill gremolada: Saxið allar kryddjurtirnar og laukana fínt og smakkið til með salti.
- Aspas: Skerið aspasinn í helminga, stráið olíu og salti yfir. Grillið í 2 mínútur á hvorri hlið. Stráið sítrónusafa og noisette-smjöri yfir með ristuðum möndluflögum.
- Berið lambaspjótin fram með kerfil gremolada og grilluðum hvítum aspas.