Lambatartar með skessujurtakremi og grilluðu flatbrauði
Lambatartar með ferskri íslenskri skessujurt — borinn fram með kremáferðar skessujurtakremi, gröfnum eggjarauðum, stökkum jarðskokkum og grilluðu flatbrauði.
Lambatartar
- 250 g lambainnanlæri
- eftir smekk skalottlaukur
- 1 msk. ferskur graslaukur
- 1 msk. sinnepsfræ, pikkluð
- eftir smekk fiskisósa
Skessujurtakrem
- 75 g skessujurt
- 2 stk. linsoðin egg (soðin í 4 mínútur)
- 200 ml ólífuolía
- 1 msk. dijon-sinnep
- eftir smekk salt
- eftir smekk sítrónusafi
Flatbrauð
- 180 ml vatn
- 300 g Typo 00 hveiti
- 9 g salt
- 3.6 g ger
Grafin eggjarauða
- 4 stk. eggjarauður
- 200 g salt
- 200 g sykur
Stökkir jarðskokkar
- eftir smekk jarðskokkar
- eftir þörfum olía til djúpsteikingar
Aðferð
- Grafin eggjarauða (má gera daginn áður): Blandið sykri og salti. Leggið eggjarauðurnar á blönduna og stráið yfir. Látið liggja í kæli yfir nótt. Þurrkið í ofni við 45°C í um 5 klukkustundir.
- Jarðskokkar: Skerið í þunnar sneiðar. Hitið olíu í 140°C og djúpsteikið þar til gullinbrúnir. Sigtið af olíu á eldhúspappír og stráið salti yfir.
- Skessujurtakrem: Setjið skessujurt, egg, dijon, salt og sítrónusafa í matvinnsluvél. Hellið ólífuolíunni rólega út í og blandið þar til kremáferð fæst.
- Lambatartar: Snyrtið lambainnanlærið og skerið í litla teninga. Blandið saman skalottlauk, graslauk og sinnepsfræjum. Smakkið til með fiskisósu.
- Flatbrauð: Hitið vatnið í 40°C og leysið gerið upp í. Blandið öllu saman og vinnið deigið. Látið hefast í 1 klukkustund. Skiptið í kúlur, fletjið út og grillið á funheitu grilli í 3 mínútur á hvorri hlið.
- Samsetning: Setjið skessujurtakremið í botn skálar. Setjið lambatartarinn ofan á. Rífið eggjarauðurnar yfir og dreifið stökkum jarðskokkum. Berið fram með grilluðu flatbrauði.