Kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu
Kolagrillaður kjúklingaborgari með rauðkálssalati og Big Mac-sósu — réttur sem allir geta töfrað fram leikandi létt.
Burgari
- 1 pk. Saffran Piri piri úrbeinuð kjúklingalæri (450-500 g)
- 8 sneiðar Ísbúi ostur
- 4 stk. Lífskornabollur
- 1 bakki tilbúnar sætar kartöflur í bitum
Rauðkálssalat
- 0.5 haus rauðkál
- eftir smekk raspaðar gulrætur (4-6)
- 3 msk. grísk jógúrt
- 0.5 stk. límóna (safinn)
- 1 tsk. siracha-sósa
- eftir smekk salt og pipar
Big Mac-sósa
- 250 g sýrður rjómi
- 2 msk. sætt sinnep
- 2 msk. tómatsósa
- eftir smekk súrar gúrkur, smátt saxaðar
- 1 tsk. paprikukrydd
- 1 tsk. chilikrydd
Aðferð
- Hitið grillið og ná góðum hita. Byrjið á meðlætinu á meðan grillið hitnar.
- Rauðkálssalat: Raspið rauðkálið gróft og gulræturnar. Hrærið saman gríska jógúrt, límónusafa og siracha-sósu. Kryddið með salti og pipar. Blandið rauðkáli og gulrótum vel saman.
- Big Mac-sósa: Hrærið saman sýrðan rjóma, tómatsósu og sinnep. Bætið saxaðri sýrðri gúrku og kryddið með paprikukryddi og chilikryddi. Geymið í kæli.
- Setjið úrbeinuðu kjúklingalærin á funheitt grill og grillið á hvorri hlið í 7–10 mínútur.
- Þegar þið snúið lærinu við, leggið tvær ostsneiðar yfir hvert læri og látið bráðna vel.
- Leggið brauðbollurnar á hvolf á grillið í stutta stund. Smyrjið Big Mac-sósu á botnana, setjið rauðkálssalat og síðan kjúklinginn með osti ofan á. Berið fram og njótið.