Glæsilegur árangur enn og aftur hjá fagfólkinu okkar í matreiðslu og framreiðslu og til fyrirmyndar í alla staði á Norrænu nemakeppninni

Bæði lið Íslands í Norrænu nemakeppninni komust á pall að þessu sinni — bæði liðin í framreiðslu og matreiðslu unnu til bronsverðlauna.

Glæsilegur árangur enn og aftur hjá fagfólkinu okkar í matreiðslu og framreiðslu og til fyrirmyndar í alla staði á Norrænu nemakeppninni

Glæsilegur árangur enn og aftur hjá fagfólkinu okkar í matreiðslu og framreiðslu og til fyrirmyndar í alla staði á Norrænu nemakeppninni í ár. Bæði lið Íslands í Norrænu nemakeppninni komust á pall að þessu sinni en keppendur Íslands komu vel undirbúnir til leiks, sem skilaði sér í því að bæði liðin í framreiðslu og matreiðslu unnu til bronsverðlauna.

Keppnin var gríðarlega hörð í þetta skiptið en Finnar sigruðu í framreiðslu og Danir sigruðu í matreiðslu.

Keppendur fyrir Íslands hönd voru Aron Fannar Þrastarson og Hákon Orri Stefánsson í matreiðslu en Aron starfar hjá Nomy veisluþjónustu og Lóla Restaurant en Hákon starfar hjá Fröken Reykjavík. Báðir stefna þeir að því að klára sveinspróf í matreiðslu nú í maí.

Í framreiðslu kepptu Árný Lind Berglindardóttir, en hún starfar á veitingahúsinu Kol, og Freyja Dröfn Bjarnadóttir, sem starfar á veitingahúsinu OTO, en þær, eins og strákarnir, stefna á að klára sveinspróf nú í maímánuði.

Keppnin í ár var sú 45. í röðinni en Ísland hefur tekið þátt síðan 1986. Margir af bestu matreiðslumeisturum Norðurlandanna hafa hafið sinn feril í þessari keppni. Keppendur koma frá Norðurlöndunum fimm en öll löndin senda tvo framreiðslunema og tvo matreiðslunema studda af liðstjórum. Forkeppni á Íslandi fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi í nóvember síðastliðnum.

Keppnin á Íslandi er haldin á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Matvís en Klúbbur matreiðslumeistara sér um framkvæmdina fyrir þeirra hönd.

Undir þema ársins, framtíðargestrisni, gerðu matreiðslunemarnir nútímalega túlkun á kálbögglum og sömdu fjórganga matseðil byggðan á leyndum hráefnum úr mystery basket.

Framreiðslunemarnir kepptu í þjónustu, þar sem fram var borin fimm rétta máltíð ásamt vínpörun, þar sem eftirrétturinn var eldsteiktur fram í sal.