Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Fröken Reykjavík er gestagrillari í þætti Grillað með Sjöfn þar sem hún nýtir sér íslenska skessujurt í tveimur glæsilegum grillréttum.

Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirkokkur á veitingastaðnum Fröken Reykjavík, er gestagrillari í nýjasta þætti Grillað með Sjöfn. Snædís bauð upp á lambatartar með skessujurtakremi, gröfnum eggjarauðum, stökkum jarðskokkum og grilluðu flatbrauði. Einnig grilluð lambaspjót og hvítan aspas borinn fram með ferskum sprettum.

„Þvílíkir bragðheimar sem Snædís bauð upp á, lambatartarnir og þetta gremolada með kerflinum eru hreint sælgæti að njóta. Örlítill lakkrískeimur í bland við ferskar kryddjurtir sem minna á íslenska náttúru leika aðalhlutverkið í forréttinum."

Snædís verður næsti fulltrúi Íslands og fyrsta konan sem tekur þátt í keppni fyrir hönd þjóðarinnar í virtustu matreiðslukeppni í heimi, Bocuse d'Or, sem haldin verður í Lyon í janúar á næsta ári.