Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu

Kolagrillaður og bragðmikill kjúklingaborgari er réttur sem allir geta töfrað fram leikandi létt að mati Rakelar Maríu, gestagrillara í nýjasta þætti af Grillað með Sjöfn Þórðar.

Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu

Rakel María Hjaltadóttir hlaupadrottning og samfélagsmiðlari er gestagrillari í nýjasta þætti Grillað með Sjöfn. Rakel María bauð Sjöfn í kolagrillaðan kjúklingaborgara með rauðkálssalati og Big Mac-sósu sem sló í gegn.

„Rakel María er snillingur í því að útbúa ómótstæðilega góða rétti sem allir geta gert á augabragði. Þessi kjúklingaborgari er algjör negla og rífur aðeins í, alveg eins og við Rakel María viljum hafa það."

Þáttinn og uppskriftirnar er að finna hér fyrir neðan.

Eftirrétturinn Smores-ídýfa með grilluðum sykurpúðum

„Þessir sykurpúðar eru rosalegir, klístraðir og gott að stinga þeim upp í sig með bræddu súkkulaði og Póló kexi. Ekta útileguréttur sem krakkarnir eiga eftir að elska."

Allt hráefnið fæst í Krónunni.