Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag
Nýr matreiðsluþáttur hefur göngu sína á Vísi og Sýn+ næsta þriðjudag. Þættirnir bera heitið Grillað með Sjöfn þar sem Sjöfn Þórðardóttir fær til sín gestakokka sem töfra fram girnilega grillrétti.

Nýr matreiðsluþáttur hefur göngu sína á Vísi og Sýn+ næsta þriðjudag. Þættirnir bera heitið Grillað með Sjöfn en þar fær Sjöfn Þórðardóttir fjölmiðlakona til sín gestakokka sem töfra fram girnilega og stundum óvenjulega grillrétti sem flestir ættu þó að ráða við.
„Þetta er mjög litríkur og skemmtilegur hópur sem heimsækir mig, allt frá landsliðskokkum og bakarameisturum til ástríðukokka og samfélagsmiðlastjarna," segir Sjöfn. „Ég valdi þennan hóp sjálf og þau voru ekki lengi að segja já við bón minni."

## Fjölbreyttur hópur gestakokka
Þættirnir verða átta talsins og er hver þáttur um 20 mínútur. Fyrsti gestakokkurinn er Ísak Aron sem var kokkur ársins 2026 og er fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Aðrir gestakokkar eru Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Fröken Reykjavík, Rakel María hlaupadrottning, Axel Þorsteinsson bakarameistari og konditor hjá Hygge bakarí, Ragna Björg súrdeigsbrauðsdrottning, Hugi Rafn landsliðskokkur, Adam Helgason samfélagsmiðlastjarna og Ívar Örn, best þekktur sem Helvítis kokkurinn.

## Uppskriftir sem allir ættu að ráða við
Sjöfn segist hafa viljað búa til matreiðsluþætti þar sem boðið er upp á þægilegar uppskriftir sem flestir ættu að geta ráðið við. Þættirnir fara í loftið á þriðjudögum á Vísi og Sýn+.