Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir

Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og Kokkur ársins 2026, er fyrsti gestur Sjöfnar Þórðardóttur í grillþættinum Grillað með Sjöfn.

Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir

Grillsumarið er hafið og ilmurinn af grilluðum kræsingum er í loftinu. Fyrsti þátturinn af Grillað með Sjöfn Þórðar er kominn í loftið og fyrsti gestur þáttarins er Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og Kokkur ársins 2026.

Ísak grillaði Miðjarðarhafssteinbít ásamt grilluðum kúrbít og tómötum með Pancettu-gremolata í forrétt. Síðan bauð Ísak upp á grillað lamba prime, brokkolíni, kartöflur og lauk sem hann bar fram með wasabi- og rauðvínsgljáa.

„Þvílík snilld að læra af Ísaki þegar grilla skal fisk án þess að það klikki. Hann gerir það listavel og tekur örskamma stund í verkið. Líka frábært að geta gert allt á grillinu, forréttinn, aðalréttinn og meðlætið."

Þættirnir fara í loftið á þriðjudögum á Vísi og Sýn+. Allar uppskriftir í þáttunum miðast við fjóra og allt hráefni fæst í verslunum Krónunnar.